«·´`·.¸.·* Valzie *·.¸.·´`·»
Klukkan
15.02.2007 10:36:02 / valaosk

Komnir ungar...

Jæja, það komu sannkallaðir afmælis-ungar.. Þeir fæddust morguninn 31. janúar, tveir lifðu af þremur, gott þetta.. :) Núna eru þeir komnir með lit og farnir að opna augun, annar er hvítur einsog hann Kalli okkar hér forðum en hinn er brúnn með dökkrún eyru.. :D Ótrúlega fallegir og algjörir kúruhnoðrar!! :haha:

Síðustu helgi gerðum við nú ekki mikið unnum, kíktum svo reyndar í afmælisparty til Steinars Páls, frítt áfengi og læti og nóóóg til!! Ég ákvað hinsvegar að vera bara driver sem varð Todd, Kára, Friðjóni og Sindra til mikillar ánægju! :) Þetta kvöld var æði og gott fyrir egobústið mitt!;)

Ég fó rmeð Stellu að kaupa geeeggjaða kerru handa Sölva, flottasta kerra EVER! :P   Núna verð ég sko aaaalltaf að passa! hehe ;)

En það má ekki gleyma að Valentínusardagurinn var í gær, við fórum út að borða með Margeiri og Svövu, besta staðinn í bænum, Hornið!! :D mmm.. þetta var svo góður matur!! Svo voru auðvitað rósir og læti, allt tilheyrandi!! ;)

Núna er bara tæpur mánuður í litla frænda!!! :haha: Get ekki beðið, er svo spennt!! Biggi og Jórunn að verða foreldrar.. OMG!! :haha: Þau eru svo sæt, fara á öll námskeið og kynna sér allt til hins ítrasta... :P

Núna sit ég bara í efnafræði, alveg að sofna.. :S Kennarinn er svo sloooowwwww..... maður verður alveg dáleiddur, hann talar í slow-motion og allar heyrfingar hægar og mjúkar... Einsog í draumi!! 8|


Jæja, farin að glósa..
Bleble í bili... :D

» 10 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 19:21:54 / valaosk

19 ára, takk fyrir..

Ég er orðin 19 ára!!
..Jedúdda mía..

Tilefni af afmælinu mínu, hélt ég smá svona "afmælisparty".. Það heppnaðist rosa vel og komur margir! :D Ég var með svona tortilla þema voða gott.. Fórum svo í singstar og það var sungið og sungið, æðislega gaman!! :haha: Ég fékk fullt af fínum gjöfum og helling að blómum.. Takk allir saman þið eruð æði!! ;)
Gjöfin frá Bryndísi, Vilborgu, Guggu, Ninnu, Kristrúnu, Tinnu og Oddnýju stóð hinsvegar uppúr gjafahópnum, takk stelpur.. Góóóð gjöf sem gefur af sér.. Luv yahh!! ;)

Annars er bara allt gott að frétta.. Skólinn að ganga vel, nú fara próf að skella á fyrir miðannarmatið.. úff!!:S Nokkur próf búin og allt gengið einsog í sögu.. :P Ég er ennþá að bíða eftir bílnum, Steinar P. er eikkað að drolla við að finna stýrisdælu í þessa elsku.. Annars er hún tilbúin og ég reddí með monningana!! :haha: úff, geeeet ekkiiii beeeðiiiið!! :D


 

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 10:22:55 / valaosk

Jææjaaaa...

Hehe, ég veit, ég veit það er alltof langt síðan síðast!! :lol: Margt búið að gerast síðan síðast!! Nýtt ár gengið í garð, Gleðilegt nýtt ár kæru vinir! :D Við erum búin að hafa það bara rosa gott, hátíðarnar voru æðislegar og janúar er líka búinn að vera rosa fínn. Við erum komin á fullt skrið í skólanum, strax byrjuð að koma próf og læti, alveg nóg að gera á þeim bæ.. :) Núna eru aðeins 7 vikur í að litli frændi komi í heimin, hlakka svo til!! Ég verð tjúllaða frænkan sem á alltaf eftir að vera að kaupa og kaupa á hann! :D Ég er nú þegar búin að kaupa heimferðar-gallann, ógó sætur blár og hlýr og auðvitað með eyrum!! Ohh samgleðst ykkur svo Biggi og Jórunn!! :haha:

Sindri er alltaf á fullu í hokký-inu.. :PHann er nú þegar búinn að keppa 2svar á þessu ári, reyndar í bæði skiptin við Björnin, í fyrri leiknum var staðan í hálfleik 5-1 efyrir SR en í lok leiks fóru mínir menn að slaka á og endaði leikurinn í 5-5, í seinni leiknum voru mínir menn að standa sig í stykkinu, þrátt fyrir vitleysisgang, ofbeldishneygð og tapsæri Bjarnamanna...:frown: og ekki má gleyma hvað dómarinn er þroskaheftur, svona eru þeir bara sumir greyin!!! Sjá bara það sem þeir vilja og nenna að sjá!! En allavega leikurinn endaði 5-3 SR í vil að sjálfsögðu!! :haha: Það er með ólíkindum hvað þetta er sexy íþrótt, mmmm, sumir(Sindri) eru sjúklega heitir í öllum búningnum!! ;)

Annars er nú ekki svo mikið að frétta af sjálfri mér... Alltaf nóg að gera svosem, vinna og vinna.. Er á gömlu góðu Videoheimum, er búin að vinna þar í 4 ár, omg!! :S Svo er ég nottla líka í gæslunni hjá Sniglunum, massa job fyrir massa köggul! ;) Ég er jú að verða risastór stelpa á þriðjudaginn í næstu viku, 19 ára hvorki meira nér minna, það verður party og alles, uppgef engar dagsetningar á netinu! ;)
Ég er m.a. að fá Bottcamp námskeið frá mömmu, hlakka geeeðveikt til að fara á það!! :D Já það er rétt kæru laxar, nú ætlar mín að taka sér árið 2007 og gera sitt besta til að hrista af sér öll þessi sambands-kíló!! En Sindri er ekkert á förum... svo ég verð að gera þetta bara með hann á bakinu! ;)
Hann er líka í átaki, er alltaf að lyfta í Gym-80, hann er að byggja þar upp aukin massa og styrk!! Grrr... :P

Verð bara að deila einu með ykkur í viðbót, ég er 3 íþróttaáföngum í skólanum, ekki nóg með það, í einum þeirra erum við mikið að lyfta og í fyrsta tímanum var styrktarpróf í backpressu... Getiði bara hvað.. Það eru 4 strákar þarna og það gat enginn tekið meira en ég.. ég tók 40 kg.. Svo var ég oftast aðstoðarmanneskjan við stöngina! Þeir gátu ekki einusinni loftað 36 kílóum!!! Þeir fóru með skottið á milli lappana úr tímanum!! HAHAHAHA... :D Svo er þarna innst inní mér eitthvað einkaþjálfar-eðli, því ég peppaði hinar stelpurnar svo mikið að nokkrar náðu að hækka sig um flokk!! ;)  Við Ágústa erum að massa þessa tíma!! Fyndnasta við þetta er að þjálfaranum finnst voða gaman að nudda þessu í nefið á strákunum, hvað Vala sé nú mikill massaköggul og snilli í hinu og þessu, ágætt egoboost fyrir mig!! :P

Jæja, held að ég hafi ekkert mikið meira að segja í þessari færslu, þangað til næst, lifið heil... ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 01:21:13 / valaosk

Til hamingju ástin mín! :*

Já, ég veit að ég er löt að blogga!
Prófin búin, allt gekk vel... Komin í jólafrí og með eitt stykki ógeðslega lungnabólgu!!!:klikk: Öööömurlegt!!!! Annars lítið að frétta, er byrjuð að jólaskreyta soldið og dúlla mér, annars er ég nú eiginlega bara föst heima, má lítið gera, það átti meira segja kannski að henda mér á spítala, en ég sagði bara hell no!! Kærastinn minn á afmæli í dag!! Síðast þegar mér var skuttlað inn, þá áttu bæði mamma og pabbi afmæli meðan ég var á spítalanum!!
En já, ástin í lífi mínu varð loksins sjálfráða.. Stór dagur í lífi hans! Elska þig ástin mín!



Ég var búin að plana daginn voða rómó, ætlaði með hann fínt út að borða og svona, svo er ég nottla svo ógeðslega slöpp að ég get ekki gert baun og helst ekkert farið út og nódabene byrjaði hann afmælisdaginn sinn á því að fara með mig á læknavaktina, þessi elska, hann er svo góður við mig! :) Þannig að við enduðum á uppáhaldinu hans KFC, fórum bara í lúguna og með það heim, það var kósý útaf fyrir sig..:P Núna eru Haffi, Ágúst, Gunnar, Margeir, Íris, Bryndís, Kristrún, Heimir og Hákon í heimsókn hjá okkur, spila poker og kósýheit! Dagurinn er búinn að vera fínn, þrátt fyrir veikindin! :)
Svo á að skíra Sölva litla á morgun og Sindri verður skírnarvottur/guðfaðir hans, hann er alveg að rifna úr stolti, sem er skiljanlegt!!;)
En jæja, nóg komið í bili, lasarus er farinn að reyna að lulla sér! :P
~Góða nótt kæru vinir~
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 09:48:47 / valaosk

Lots of things happening

Vá.. Mikið búið að gerast uppá síðkastið..8|
Afi Grétar fór í stóóra hjartaaðgerð í byrjun mánaðarins, sem tók 7 klukkutíma rúma, en sem betur fer gekk hún vel með færasta hjartaskurðlækni landsins. Hann var svo á gjörgæslu í rúman sólarhring í öndunarvél tengdur fuuullt af snúrum og drenum. Hann er kraftakall og gengur vel að jafna sig, en allt tekur þetta tíma og þolinmæði. Allt gengur vel á þeim bæ. :)
Við skelltum okkur á Gettóballið, það var bara þvílíkt stuð, allir skemmtu sér vel, nema Jónína... Hún datt og það brákaðist kúlan í ökklanum, sem betur fer samt ekki brotin,  en hún kjáninn hélt að þetta væri nú bara bólga ég þurfti að stappa því í hana að drulla sér á slysó, enda var það rétt hjá mér, og hún fór daginn eftir í neglingu á ökklanum. En allt gengur vel hjá henni, hún var heppin að það fór ekki verr, þetta var nú ekki sem verst og ekkert til að væla yfir! ;)
Ekki fleiri sjúkrasögur í bili... En já, ég er búin með vinnustaðanámið á A-5, YEEESS!!! :D Looooksins...
Annars er lítið að gera, og bara 1 og hálf vika eftir af skólanum, og væntanlegt jólafrí 7.des!!! :D Ég þarf að fara að láta setja skol aftur í hárið, farið að vera soldið þreytt.. Nóg með það.. :P
Jæja, þá var verið að klára að rífa úr mér alla jaxla, á föstudaginn kallaði frændi í mig og sagði mér að koma strax, afþví ég var kominn með stanslausan hausverk og verki í kjálkann, það var sama sagan og með neðrikjálkann, ég er með svo lítinn munn að jaxlarnir komast ekki niður, þannig að hann varð að gera smá aðgerð, skera og næla sér í þá. Fyrst tók hann þann sem var kominn meira niður, svo sagði hann í gríni hvort hann ætti að taka hinn líka, ég bara JÁ, klááraðu þetta bara, þá er þetta búið, hann bara ookei!! Hehe, það var gegt skrítið að vera dofin báðu megin í munninum og alveg niður í kok, hehehe!! Svo gat hann ekki saumað sökum þess hversu lítill og þröngur litli munnurinn minn er.. :P Sodlið nasty að vera með tvo stóra skurði í munninum, sem betur fer grær allt hratt í munninum.. Svo það hefur eila bara verið jógúrtfæði, er nú samt í dag farin að borða aðeins venjulegri mat!
Dagný Ósk á afmæli í dag, til hamingju elskan mííín!! :haha: Við fórum síðasta laugardag út að borða á Austur Indía félagið, gegt fínn staður og óóóógeðslega góður matur!! Við vorum 7 ég, Dagný, Elín, Hafrún, Sylvía, Lilja og Jana.. Það var rosa gaman!! :D Sem betur fer gat Hafrún reddað pössun fyrir Viktor litla, það var rosa gaman að hitta hana loksins!! Takk fyrir kveldið stúlkur mínar!! ;)
Ég fór svo með Gogga brósa í bíó á sunnudeginum, fórum á Borat, geeeggjað góð mynd sko!! :P Pabbi gaf okkur bara penge og ég fékk kaggann hans flotta!! :haha: Svo eftir bíó, skilaði ég Gogga heim og fór og hitti Evu mína og Pjesann hennar, alltaf gaman að hitta þau!! :D
Komið nóg í bili, yfir og út!! :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 10:45:26 / valaosk

That's life..


Til hamingju með daginn kæri Máni.
Í dag hefðir þú orðið 18 ára.
Ég minnist þess með góðum minningum
sem sitja fast í hjarta mínu að eilífu.

Ég sé þig fyrir mér rúntandi á flotta
bílnum þínum í himnaríki, fagnandi
sjálfræðinu.

Þú varst svo góður strákur, áttir
þetta ekki skilið, þú varst alltaf
með bros á vör, sama hvað gekk
á í lífinu.. Þú ert minn engill.

Takk fyrir liðnar stundir, takk fyrir
trausta vináttu, takk fyrir allt.
Hvíldu í friði elsku vinur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 10:59:18 / valaosk

Love is in the air



Já, stóri dagurinn rann upp á Laugardaginn 21. október, við Sindri áttum 2 ára afmæli! :haha: 2 yndisleg ár sem eru búin að fljúga áfram á eintómri hamingju.. allavega svona að mestu leyti ;) Ótrúlegt hvað við erum búin að upplifa margt saman 2 útlandaferðir, spítalavist og aðgerð, sorg, hamingju, 2 jól, afmæli, margar ferðir út á land og allskonar ævintýri.. :) Já krakkar mínir, ásdtin blómstrar....
Við fórum á Hornið eftir vinnu hjá mér en það var allt fullt, við gátum ekki pantað vegna þess að ég vissi ekki hvenær ég væri búin í vinnunni... Þannig að við ætlum að eiga það inni fyrir næstu helgi:) Við ákváðum í staðinn þá að bjóða í party, vorum ein heima í stóra húsinu, svo við fórum nokkur í pottinn að drekka og fórum svo uppúr þegar húsið var fullt af fólki.. Svo var bara gaman langt fram á nótt, kom alveg fullt af fólki m.a. Bibba, Ninna, Kristrún, Oddný, Bentína og driverinn þeirra, Margeir elskan, Stymmi, Steinar Páll, Gulli, nokkrir strákar sem voru úti á Costa, m.a. söngvarinn í Búdrígindum (eða hvernig sem það er skrifað), já os svoo margir fleiri! Allir óskuðu okkur til hamingju!! :haha:  Svo bjóðum við hvort öðru saman í Spa með nuddi og fíneríi.. mmm.. :P Hlakka svo til!

En já, ég er núna byrjuð á fullu að vinna á Nings, rosa fjör! Það er rosa mikið að læra inná en þetta er aaallt að koma! :lol: Annars er ekki mikið meira að frétta úr okkar heimi einsog staðan er í dag. Ætla að halda áfram að læra fyrir stærðfræðipróf! ;)
Bless í bili kæru vinir..

Kvittið fyrir innlitið í gestabók og skráið skoðanir!

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 10:52:59 / valaosk

hmm..

Ég er miklu duglegri að blogga en þið haldið, bara alltaf um leið og ég er búin að skrifa, þá bara neeeei dettur allt út!!!!Jæææja, nú er ég orðin freekar þreytt á þessu blog.centrali, þroskahefta drasl!!!:whut::^) OHH.. hatidda!! En já, ekki svo mikið að frétta, er að bryja að vinna á Nings, með mínum ástkæra bróðir (vini) Margeiri.. :) Vetrarfríið var að enda, ljúf helgi, 5 daga helgi hjá mér.. Fór oft á kaffihús og svo var náttfataparty á sunnudeginum hjá Gunna og Eyrúnu, það var geggjað, singstar í botn, ég hef þessa hæfileika ennþá í mér, var alltaf með yfir 9000 stig og hæst er 10000, singstar babehh! ;)
Svo er nóg að gera í skólanum, samt aðeins búið að lægja um.. :P sem betur fer.. :P
Æj já, hehe svo hélt ég party þar síðasta laugardag, það var fínt sko, engin læti bara skynsemi, takk fyrir krakkar mínir!! ;)
Haha á fimmtudaginn þegar vetrarfríið var að byrja þá skelltum við okkur hópur saman á bjórkvöld á sportbar, það var geeeeeeggjað gaman, hátíðleg stund fyrir mig þegar ég fór í fyrsta skipti sjálf á barinn!!! :haha:
Annars tek ég bara lífinu með eins mikilli ró og ég get þessa dagana, er búin að vera á svo sterkum lyfjum útaf lungnabólgu, hás blóðþrýstings og hektisks asma! :S ikke so godt!! En ég er öll að koma til held ég, vona ég!!! (7, 9, 13)  Við Sindri erum gölluð eintök, alltaf eikkað sona, hjá mér eru það það öndunarfærin og húðin að klikka en hjá honum eru það sýkingavarnir líkamans að klikka, án grín hann fær þvílíkar sýkingar allstaðar, í hverja einustu skrámu sem hann fær og allt, hann er búnað fara í eina soldið stóra aðgerð og 2 litlar tásuaðgerðir á sömu tásu, síðasta var í gær!!! Hann er svo mikil hetja þessi elska!! :)  Stendur sig svo vel, alltaf verið að pína greyið... :S  Auðvitað stend ég einsog stytta við hliðiná honum og fylgist með þessu öllu saman, sé t.d. um umbúðaskiptin og svona.. fáum birgðir heim og ég spreiti mig á honum!!;) :*
Nú eru báðir ungarnir seldir, vildi svo krúttlega til að strákurinn fór bara í næsta hús, en stelpan fer lengst út á land. Á eftir að sakna þeirra pínu, well fleiri ungar eftir ca. mánuð!! :haha: Ég Sit núna í íslensku403 að sdúdera bókmenntasöguna, ekki mitt uppáhald þrátt fyrir allt!!  Var í íþr áðan, síðasti skylduáfanginn í íþróttum, fer næst í dans!!! :P Anyways, já fengum að ráða hvort við færum í sund eða upp að lyfta, ég fór í sund, mmm það var svo góð byrjun á deginum að liggja í nuddpottum og svo í gufu svo aftur í pottana svo heeeita góða sturtu!:D Ljúft líf..

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 10:25:18 / valaosk

...

Dilana var nett, já það er rétt, ég fór á tónleika með Dilönu og Magna&co.. Fékk meira að segja V.I.P. boðsmiða! ;) Bauð Evu minni með, Sindri var nebbla á æfingu.. :) Þetta var geggjað sko, Dilana er geggjuð!!! :D Hún er píííínulítil og er alltaf á tásunum!! tíhí.. En já.. Það er lítið búið að vera að gerast hjá mér uppá síðkastið.. Bara próf og ritgerðir og vinnan...
Mín ástkæra móðir varð 43 ára þann 1.okt, til hamingju með það bestaasta mamma!! :*
Minn ástkæri faðir varð 45 ára þann 2.okt, til hamingju með það pabbs! :*
Litla krúttubollan mín hún Elín Helga varð 1 árs þann 3.okt, til hamingju með það músin mín!

Ég gaf mömmu geggjaða húfu úr 66gráður Norður, henni var búið að dreyma um hana, mín lét drauminn verða að veruleika! ;) Fór með Jónínu og litla kút í Kringluna að reyna að finna eikkað handa pabba, hef bara ekki hugmynd um hvað það gæti verið!! :S Svo þarf ég líka að finna eikkað sætt handa Elínu.. :)
Anyways.. Hef ekki mikið að segja í viðbót!! JÚ!!! Sindri var að keppa í gær, og viti menn? JÁ SR RÚSATÐI BRININUM!! :haha: 9-5 takk fyrir! ;)
Takk í dag, bless.. :**
Skoðanir og gestabók, TAKK!! :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 16:35:09 / valaosk

blehh

Puff.. Farin að halda að enginn skoði þessa síðu nema mín elskulega Eva.. Allavega er hún ein af fáum sem skilur eftir sig spor! Koma svo, kvitta í gestabók og skoðanir!!;)
Lítið að frétta nema vinnan og skólinn... Jú, er að fara að kaupa mér bíl.. geggjaðan!!:haha: En allavega, já við Sindri erum að fara að sigla saman í 3ja árið saman!!:P ótrúlegt, en æðislegt!! Elskann svo mikið.. ;)

Veiii, Biggi stóri bró og Jórunn unnusta hans eru að fara að gifta sig næsta sumar OG það er lítið kríli væntanlegt í byrjun mars!!:haha: Til lukku elsku dúllurnar mínar! :***

Við gerðum lítið um helgina.. Hitti Evuna mína og Pjésann hennar, voða fínt! Svo vorum við að passa litla kút yfir nótt! æjj hann er svooo mikið æði, hann er farinn að halda höfðinu alveg sjálfur og er alltaf að reyna að setjast upp!! Sem er ÓTRÚLEGT afþví hann er bara 3 og hálfs mánaða!!!8| Ég var að gefa honum geggjaða Graco kerru, hægt að smella bílstólnum hans ofaná, voða hentug og ýkt flott!:P Það er alveg sláandi hvað margar vinkonur og kunningjakonur mínar eru orðnar mömmur eða eru óléttar...

Annars er búið að vera brjálað að gera í skólanum, fullt af risa verkefnum og læti! Búin með 2 stór verkefni, annað í ÍSL4036 og hitt í HJU4036.. svaka stolt! ;)

Andrea mín varð 3 ára skvís í dag, til lukku með það krúttið mitt! :**
Inga mín varð 18. ára, þann 22.sept, til lukku með það.. :**
María Ósk varð 18 ára, þann 10.spet, til lukku með það.. :**
Bjartur Sumarliði, minn ástkæri og heittelskaði einkasonur varð 5 ára þann 24.sept!! Innilega til hamingju með það elsku ástarhnoðrinn minn!! :****

Jæja, verð að fara að læra.. Er líka að deyja úr flökurleika! :$ Well, l8er guys! ;)

Koma svo, kvitta í gestabókina!!



» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 17:56:06 / valaosk

Skóli, skóli, skóólii..



Þá er skólinn byrjaður.. Alveg helvíti nóg að gera þar.. byrjuð að vinna líka á fullu! Mín er farin að spá alvarlega í bílkaupum! ;) Ungarnir Snar og Snöggur eru alltaf að vaxa og dafna, búin að setja myndir á myndasíðuna mína.. Þeir eru svooooo sætir og svo góóóðir og svoo mikil kúrudýr!! :D Dýrka þá ógó mikið.. :P Tími eiginlega ekki að selja þá! án djóks... Busadagurinn var í dag! múhahahaha, var víst svolítið fantalegt, fiskislor, mysa og svo látin labba heim utan að landi einhversstaðar!! HAHAHA! en já, svona er þetta krakkar mínir! ;) Svo er það bara busaballið í kveld, ákváðum að skella okkur í góðra vina hópi.. :) Baldvin verður driver á nýja ógó flotta eeeldrauða Lexusnum sínum! ;) Svo má ekki klikka að vaka eftir ballið til að kjósa Magna baby! :haha: Það verður fyrirparty hjá Ólöfu! ;)

En jæja, farin að reyna að gera mig ready fyrir kvöldið!
Sjáumst fólk.. ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 13:42:20 / valaosk

Litlir hnoðrar komnir..

Jeijjj, það eru komnir nýjir kanínuungar!!:D Fæddust sunnudaginn 6. ágúst! Þeir eru a.m.k 3, höfum ekki þorað að kíkja undur allan feldinn sem hún reitti af sér, en við sáum 3 sem voru búnir að skríða aðeins frá "hreiðrinu"..:P Ég fékk strax símhringinu á þriðjudeginum, sama dag og ég setti auglýsingu um að þeir væru komnir, þetta eru heitar lummur þessar elskur! :) 

Við fórum í Þykkvabæinn á einskonar fjölskyldumót um verzlunarmannahelgina, það var ágætt.. Heilmikið gert! :)

En nú er komið að því, skólinn fer að byrja.. úff!:whut: Síðasti vinnudagurinn minn er á föstudaginn, svo er ég í fríi í 10 daga áður en skólinn byrjar! Nánast eina fríið sem ég fæ í ár... :S  Skandall, en maður verður að vinna fyrir sér sjálfur, það gerir það enginn annar.. (allavega ekki hjá venjulegu fólki) En jújú, það verður ágætt að komast í skólann aftur, fasta formið.. Hitta alla krakkana og solis.. :)

Gaypride er næstu helgi!! :D Ohh.. hlakka svo til! Svo eru Töðugjöld á Hellu, kannski mar skelli sér með einhverju liði þangað, aldrei að vita! ;) 

Nóg í bili kæru vinir.. Yfir og út, vinnan kallar! :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 05:42:56 / valaosk

djamm?

Jú, vitiði bara hvað? Mín skellti sér á djammið.. úff, það var nú saga til næsta bæjar! Ég, kata, heimir og sindri og keyptum áfengi fyrir 16.000!!! 8|  eða strákarnir keyptu það, þessar elskur... ;)  Við vorum semsagt að fara í afmælis-grill-party til Ingvars! Til lukku með sjálfræðið Ingvar minn! :haha:  Já, þetta var æðislegt... Fórum í singstar og viti menn ég var singstar!! Reyndar var fyrsta lagið Be my girl-Jet svo hratt að þá var ég bara rising star.. :P  újee...

Það var djammað og djúsað, allir í góðum fíling... allir á leið niðrí bæ, nema ég... ég vildi bara heim, held að ég hafi verið aðeins of mikið í því, var allavega suddalega þreytt!! Það vildu margir meina að ég hafi verið að deyja, en það var bara bull, var bara þreytt! :) 

Það má ekki gleyma símtalinu sem ég átti við minn heittelskaða Sindra og mína kæru vinkonu Bryndísi.. Já, Ágúst og Heimir héldu undir sitthvora hendina á leiðinni heim, veit ekki akkuru, gat nú alveg gengið!:P  Þá hringdu 2 símar, þeir voru báðir til mín, það voru Bryndís og Sindri, þá sátu þau saman á Laugarveginum en fannst þau endilega verða að rugla mig í ríminu með því að tala við mig í sitthvorn símann á sama tíma.. Kjánar...!  En ómægad hvað það var gott að komast uppí rúm og framhjá Dóra og Stellu sem litu út fyrir að hafa verið að bíða eftir mér útá plani, veit ekki akkuru þau hlógu svona mikið að mér... :$

Sunnudagurinn var helvítið sjálft og eigilega mánudagurinn líka, ég var búin að vera eikkað lasin á föstudag og laugardag og ég tala nú ekki um að fara að sulla áfengi ofaná það..:S. Vitleysingurinn ég mundi bara gera það, enda fékk ég að kenna á því í þynnku og meiri lasarusa!:frown:  Ég ætla aldrei að drekka aftur...  Góð setning, manni líður strax betur! :)

Nóg um það... Það er alltaf nóg að gera í vinnunni, er í þessum töluðu orðum á næturvakt, reyndar óvenju rólegt núna, bara 2 sjúklingar, voru 4 hjúkkur, ein fór barasta heim og svo ég sjúkraliði... 3 hjúkkur og 1 sjúkraliði er soldið mikið á bara 2 stabila sjúklinga!! Það er alltaf vel mannað þegar fáir sjúklingar eru en lélega mannað þegar margir eru, ikke so godt!   En ég geri, sé og læri svo margt að orð fá því ekki lýst.. fólk deyr, þarf að hjartahnoða, gefa stuð, intubera (til að tengja öndunarvél), bæta á lyf, skipta á sárum og skurðum og eeendalaust fleira, en erfiðast er að sjá líf fjara út... Það er erfitt, megi okkar kæra Unnur hvíla í friði.. :cry:

Ekkert plan um verslunarmannahelgina, bara vinna einsog alltaf.. hef aldrei gert neitt spes um verslunarmannahelgina, eiginlega undantekningalaust alltaf að vinna... :S Lúði, ég veit!

Á morgun ætlum við með Heimi og Kötu út að borða og á Pirates of the Carribean 2.. Hlakka til...:)

Segjum þetta gott í bili, farin að taka blóðsýni og fleira gaman.. Góða nótt, það sem eftir er af henni!  ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 23:18:32 / valaosk

Home Sweet Home!!

Komin heim frá Paradís! :haha: Ohh það var svo æðislegt þarna úti, við náðum góðum lit og versluðum heilmikið!! :lol:  Ég keypti mér helling af fötum, skóm og skartgripum, en aðal thing-ið var geeeeggjaða D&G úrið mitt!!! :D  OMG sko hvað ég elska það, hef þráð það í ár, hérna heima kostar það 37.400 á spáni keypti ég það ásamt Tax-Free á 26.000, pælið í því 11.400 króna munur, tel það nokk góð kaup! ;) við skulum ekkert ræða upphæðina sem flaug í þessari ferð.. átti svosem alveg efni á þessu öllu, kom í ljós að Gjörgæslan borgar heeelvíti vel skomm!! 8) Maður er bara farinn að spá í bílakaupum og læti.. :P Ég lét gera svona afríkufléttur í mig, þær voru geggjaðar sko, en svo varð ég að taka þær úr aþþí að í brann á hársverðinum... :( Sindri var kjáni og brann á nebbanum og öxlunum..  En já, ég get ekki sagt annað en að þetta hafi verið rosalega vel heppnuð og góð ferð! :D  Takk æðislega fyrir samveruna á Spáni elsku Heimir og Kata, þið eruð yndi!:haha: Lov jú gaís! 

En já, það er brjálað að gera í vinnunni, einsog vanalega... Ég læri rosa mikið og tek mikla ábyrgð.. er meira að segja farin að gera ýmislegt sem hjúkkurnar eiga að gera, mín er að standa sig, hjúkkurnar eru aaalltaf að segja hvað ég er dugleg og að þetta starf hæfi mér svaka vel, hæfileikarnir liggja í heilbrigðiskerfinu.. Þar liggur líka framtíðarplanið mitt!!:D

En vááá, hvað það var gott veður í dag, við Bjartur vorum bara að hoppa um í garðinum með frisbí,  honum fannst líka rosa gaman að stríða kanínunum... Batti var rosa duglegur að hjálpa mér að laga útibúrið hjá kanínunum, setja net yfir og sonna frekara öryggi fyrir væntanlega unga!!:) Snúður og Snotra eru ástfangnari sem aldrei fyrr, eru saman í stóra gerðinu við útibúrið í góðu yfirlæti, alltaf að kyssast! :)  Mmm.. Núna verðum við Sindri ein í húsinu, hjónin fóru með litlu skessuna í ferðalag með fellihýsið... Mmmm, góðir tímar framundan! ;)

Mín stóð sig frábærlega í sumarskólanum í íslensku, fékk 7 í lokaeinkunn og 9,7 í Hávamálum og 8 fyrir Njáluritgerðina! :haha:  Bjóst ekki við því, hélt ég hefði fallið, fór gegt sad í flugvélina morguninn eftir.. Vegna þess að ég var alleg viss um að hafa fallið!

En ég held að þetta sé lengsta blogg sem ég hef nokkurn tíman skrifað.. Vá, jámm.. er alveg viss um það..   úff þetta er svo slöpp síða, veit ekki hvað fær mig til að nenna að skrifa hérna.. Hehe, á mér líf utan internetsins, það er alltaf jákvætt.. ;)

En endilega kvitta í gestabók, hún er eikkað tómleg greyið! :S

Takk í bili kæru vinir.. :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 17:24:35 / valaosk

Á Spáni er gott ad djamma og djusa!

HAHA!! Allt of gaman herna, hef ekki tima ad blogga... Allir brunir og saelir! Hittum Kotu og Heimi naestum a hverju kvoldi!! Aedi!! Allt rosa odyrt herna, buin ad vera dugleg ad versla... morg haelsaeri samt.. :/

Bless i bili kaeru vinir!!:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagsetning
10. febrúar 2012